laugardagur, 5. mars 2016

Logi sennilega ekki meira með Njarðvík :( Slæmar fréttir

logi_gunnars_2015

Handarbrotnaði í fyrsta leikhluta í gær

"Já þetta er ekki skemmtilegt en þetta gerðist í fyrsta leikhluta í gær að ég virðist hafa handabrotnað. Ég fór í röntgen og þá kom í ljós að beinið er farið í tvennt og þetta er óljóst hvort ég verði meira með. Ég í raun veit ekki alveg hvað þetta tekur langan tíma en það er stutt í úrslitakeppni og þetta verður að koma í ljós" sagði Logi Gunnarsson leikmaður Njarðvíkinga í samtali við Karfan.is 

Þeir sem sáu leikinn í gær sáu greinilega að ekki var allt með felldu og þá sérstaklega undir lok leiks þegar Logi losaði sig hvað eftir annað við boltann þegar virkilega þurfti á skoti frá kappanum.  Vægast sagt blóðtaka fyrir þá Njarðvíkinga sem hafa einnig þurft að spila án Hauks Helga síðustu leiki vegna bak meiðsla en von er hinsvegar á honum tilbaka.