mánudagur, 14. nóvember 2016
laugardagur, 29. október 2016
sunnudagur, 14. ágúst 2016
föstudagur, 8. apríl 2016
laugardagur, 2. apríl 2016
sunnudagur, 20. mars 2016
fimmtudagur, 10. mars 2016
laugardagur, 5. mars 2016
Logi sennilega ekki meira með Njarðvík :( Slæmar fréttir
"Já þetta er ekki skemmtilegt en þetta gerðist í fyrsta leikhluta í gær að ég virðist hafa handabrotnað. Ég fór í röntgen og þá kom í ljós að beinið er farið í tvennt og þetta er óljóst hvort ég verði meira með. Ég í raun veit ekki alveg hvað þetta tekur langan tíma en það er stutt í úrslitakeppni og þetta verður að koma í ljós" sagði Logi Gunnarsson leikmaður Njarðvíkinga í samtali við Karfan.is
Þeir sem sáu leikinn í gær sáu greinilega að ekki var allt með felldu og þá sérstaklega undir lok leiks þegar Logi losaði sig hvað eftir annað við boltann þegar virkilega þurfti á skoti frá kappanum. Vægast sagt blóðtaka fyrir þá Njarðvíkinga sem hafa einnig þurft að spila án Hauks Helga síðustu leiki vegna bak meiðsla en von er hinsvegar á honum tilbaka.
laugardagur, 6. febrúar 2016
fimmtudagur, 28. janúar 2016
Tapleikur á heimavelli
þetta fór ekki vel fyrir okkur Njarðvíkginga í kvöld :( þar sem við töpuðum á móti KR-ingum það er engan veginn nóu gott að tapa á móti þeim. Leikurinn var í jáfnum allan tíman, en á lokasprettinum höfðu KR-ingar því miður betur. Njarðvík reyndu að svar með körfum en ekkert gekk upp og KR-ingar fóru með sigur af hólmi 89 - 100 eins og þið sjáið á myndinni hér að ofan
Stórleikur umferðarinnar var leikinn í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld þar sem áttust við heimamenn í Njarðvík og KR. Liðin sem mættust í undanúrslitum á síðasta ári sem endaði í magnaðri rimmu. Liðin höfðu mæst í tvemur leikjum í vetur og KR sigrað þá báða, heimaleik sinn í deildinni og svo slógu þeir Njarðvík út úr bikarnum í 8 liða úrslitum þannig að Njarðvík átti harm að hefna.
1. leikhluti var mjög hraður og skiptust liðin á að keyra í sóknir hvað eftir annað. Haukur setti fyrstu stigin í leiknum og fylgdi Pavel á eftir með fyrstu körfu KR-inga. Mikil keyrsla í bæði vörn og sókn hjá báðum liðum. Um miðbik leikhlutans gekk ekkert hjá heimamönnum að setja upp í sókn og töpuðu þeir boltanum í hverri sókninni á fætur annarri. Gestirnir gengu á lagið og kláruðu sín hraðaupphlaup vel. Auk þess voru Njarðvíkingar ekki að ráða við M. Craion sem var duglegur að fá boltann, pósta menn upp og setja auðveldar körfur. Í stöðunni 14-22 tók Friðrik Ingi leikhlé, eftir að hans menn höfðu tapað enn einum boltanum sem endaði með körfu gestanna, og las aðeins yfir sínum mönnum. Þetta kveikti í Njarðvík sem kom af krafti inn í leikinn og saxaði á forskot gestanna sem endaði svo á því að Ólafur Helgi setti flotta 3.stiga körfu og jafnaði leikinn 22-22. Flottur 8-0 kafli hjá heimamönnum og stuðningsmenn liðsins farnir að láta í sér heyra. KR svaraði þó fyrir sig undir lok leikhlutans og endaði hann 22-26 þeim í vil.
2. leikhluti var beint framhald af þeim fyrsta. Mikill hraði og mikil barátta inni á vellinum. Ægir þór var sprækur fyrir KR og setti hann 4 stig með stuttu millibili. Darri og Björn fylgdu hans fordæmi og settu sína körfuna hvor og var staðan þá orðin 24-36. Þá var komið að Maciej Baginski sem var ekki á því að láta gestina stinga af. Hann setti niður tvær góðar 3.stiga körfur með stuttu millibili og minnkaði muninn í 30-36 þegar 7:12 mín voru eftir af leikhlutanum. Mikið skorað í leiknum og varla sú sókn KR sem ekki endaði með körfu. KR komst í 38-30 með körfu frá M. Craion en þá komu tvær 3.stiga körfur í röð frá Loga og svo Maciej sem þá var búinn að skora 11 stig í leikhlutanum. Njarðvík komst svo yfir þegar Haukur Helgi náði að stela boltanum og skora eftir gott samspil við Loga 43-42 staðan. Liðin skiptust svo á að skora en lokasekúndur leikhlutans voru skrítnar. Dómararnir stöðvuðu leikinn og létu laga klukkuna þannig að 3:48 sekúndur voru eftir og staðan 46-49 fyrir KR. Þeir áttu boltann og tóku hann inn undir sinni eigin körfu. Það endaði ekki betur en svo að Maciej stal boltanum og kom honum á Loga sem skoraði flautukörfu og minnkaði muninn í 48-49. Njarðvík var með 11 tapaða bolta í fyrri hálfleik sem átti eftir að reynast þeim dýrt.
Atkvæðamestir hjá Njarðvík: Logi Gunnars 15 stig/ 5 stoðsendingar, Maciej 11 stig, Haukur Helgi 9 stig/ 4 fráköst og Jeremy Atkinson 8 stig/ 6 fráköst.
Hjá KR: M. Craion 14 stig/ 6 fráköst/ 3 stolnir, Darri Hilmars 11 stig/ 5 fráköst, Ægir Þór 10 stig/ 5 stoðsendingar/ 3 stolnir.
3. leikhluti var líkt og hinir tveir mjög hraður. KR-ingar virtust skora í hverri einustu sókn sem þeir fóru í og var M. Craion þar fremstur í flokki en hann var mjög grimmur undir körfunni og var að skila boltanum ofaní. Liðin skiptust á að skora og mikil barátta en þrátt fyrir það var leikurinn nokkuð prúðmannlega leikinn en til að mynda kom fyrsti skotrétturinn í leiknum þegar um 3 mínútur voru eftir af 3. leikhlutanum. Ægir Þór var duglegur að mata sína menn og var hann kominn með 10 stoðsendingar í leiknum þegar hér var komið við sögu. Leikhlutinn endaði svo svipað og sá á undan en KR hafði boltan en tapaði honum sem endaði með því að brotið var á Ólafi Helga sem setti niður eitt víti og staðan 70-74 fyrir lokaleikhlutann.
4. leikhluti byrjaði vel og sett Haukur Helgi 3.stiga körfu og kom Njarðvík yfir 75-74. Í kjölfarið skiptust liðin á að skora en þar fóru fremstir Helgi Már fyrir KR og Maciej fyrir Njarðvík en þeir settu 5 stig hvor á stuttum tíma. Í stöðunni 85-87 skoraði Brynjar Þór körfu nánast kominn á rassinn eftir að Maciej braut á honum og fékk hann vítaskot að auki sem hann setti og kom KR í 85-90 þegar um 3 mínútur voru eftir. KR læstu vörninni þessar síðustu mínútur og voru að setja skotin sín á hinum enda vallarins. Þá einna helst Pavel sem setti tvær 3.stiga körfur með stuttu millibili og kom KR í 85-96. Heimamenn voru langt í frá nógu grimmir í vörninni í síðasta leikhlutanum og fengu þeir til að mynda fyrstu villuna dæmda á sig þegar um mínúta var eftir. Svo fór að lokum að gestirnir innsigluðu sigurinn 89-100.
Atkvæðamestir hjá Njarðvík voru: Haukur Helgi 23 stig/ 4 fráköst/ 4 stoðsendingar, Maciej B. 18 stig/ 5 fráköst, Jeremy Atkinson 18 stig/ 8 fráköst/ 4 stoðsendingar, Maciej B. 18 stig/ 5 fráköst en hann kom mjög sterkur inn í þennan leik í 2. Leikhluta og Logi Gunnars með 16 stig/ 6 fráköst/ 7 stoðsendingar. 18 stig á sig eftir tapaða bolta í leiknum reyndist Njarðvíkingum mjög dýrt í kvöld.
Hjá KR voru atkvæðamestir: M. Craion sem var gríðarlega öflugur í leiknum bæði í vörn og sókn með 28 stig/ 14 fráköst/ 7 stolna bolta, Darri Hilmars. 17 stig/ 5 fráköst, Pavel 13 stig (þar af 8 stig á lokamínutum leiksins)/ 4 fráköst/ 5 stoðsendingar, Ægir Þór 12 stig/ 14 stoðsendingar/ 6 fráköst og Björn K. 10 stig/ 3 fráköst.
þriðjudagur, 26. janúar 2016
Allir á völlinn!!!!
það verði sannkallaður risaslagur í Ljónagryfjunni næstkomandi fymmtudag þegar NJARÐVÍK FÆR KR í heimsókn. Leikirnir á milli þessara liða hafa verið skemmtun í hæsta gæðaflokki ef það má sega það. ÁFRAM NJARÐVÍK!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)






